Stytta af Diego Maradona, einum besta knattspyrnumanni sögunnar, var reist í Indlandi á dögunum. Styttan þykir nokkuð furðuleg og ekki mjög lík argentínska snillingnum.
Maradona var samt sem áður mættur til Indlands til að bera styttuna augum og eins og sést á meðfylgjandi myndskeiði frá BBC er hann hæstánægður með verkið.
Stytta af Cristiano Ronaldo vakti mikla athygli á dögunum, þar sem hún þótti ansi ólík kappanum. Nú er spurning hvort þessi stytta hafi toppað styttu Portúgalans.
And you thought Cristiano Ronaldo's statue was bizarre 😳😂 pic.twitter.com/O8AgUWmyLA
— BBC Sport (@BBCSport) December 11, 2017