Pólski framherjinn Lukasz Teodorczyk var hundóánægður eftir að hafa verið rekinn af velli fyrir leikaraskap í leik með Anderlecht gegn Charleroi í belgísku A-deildinni í knattspyrnu á sunnudaginn.
Teodorczyk fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir að láta sig falla innan teigs í von um að krækja í vítaspyrnu. Hann strunsaði af velli og þegar hann kom að búningsklefa Ancerlecht-liðsins tók hann óánægju sína út á hurð klefans, sem hann skallaði eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.