Knattspyrnustjóri brasilíska liðsins Gremio, Rento Gaucho, heldur því fram að hann hafi verið betri leikmaður en Cristiano Ronaldo. Gremio og Real Madrid mætast í úrslitaleik heimsbikars félagsliða síðdegis.
Renato var af mörgum talinn einn besti vængmaður í heimi á níunda áratug síðustu aldar. Hann segir að Ronaldo hafi ekki mikil áhrif utan vítateigs.
„Ég held að ég hafi verið betri en Cristiano Ronaldo,“ sagði Renato á blaðamannafundi fyrir úrslitaleikinn þar sem hans menn þurfa að hafa góðar gætur á Ronaldo.
Renato bætti því við að spænsku Evrópumeistararnir væru sigurstranglegri í leiknum á eftir en hans menn væru ekki komnir til að slaka á.