Brjálaðist út í danskan landsliðsmann

Granit Xhaka brjálaðist út í Dani.
Granit Xhaka brjálaðist út í Dani. AFP/Liselotte Sabroe

Svissneski landsliðsmaðurinn Granit Xhaka var allt annað en sáttur með Danann Morten Hjulmand í vináttulandsleik þjóðanna í knattspyrnu sem lauk með markalausu jafntefli á Parken í gærkvöldi. 

Hjulmand fylgdi harkalega á eftir er hann reyndi að vinna boltann af Xhaka. Svisslendingurinn var allt annað en sáttur með það og brjálaðist út í Danann. 

„Svona gerir maður ekki, hvað þá í vináttulandsleik,“ sagði Xhaka í viðtali við danska blaðamenn eftir leik og bað þá um að spyrja Hjulmand frekari spurninga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert