Skellt í fjarveru Messi

Lionel Messi hefur fundið fyrir meiðslum í þó nokkurn tíma.
Lionel Messi hefur fundið fyrir meiðslum í þó nokkurn tíma. AFP/Chandan Khanna

Inter Miami fór illa að sínu ráði í New York er liðið tapaði fyrir New York Red Bulls, 4:0, í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta í gær. 

Argentínski knattspyrnusnillingurinn Lionel Messi er að glíma við meiðsli og hefur ekki tekið þátt í undanförnum leikjum liðsins. 

Þrátt fyrir það voru hinar stjörnur liðsins, Luis Suárez, Sergio Busquets og Jordi Alba allir með.

Liðið hefur nú tapað tveimur leikjum og unnið einn í fjarveru Messi en með Argentínumanninn í liðinu er það taplaust. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert