Valdi Bandaríkin fram yfir Ísland og byrjar með látum

William Cole Campbell heldur um muninn í leik með FH …
William Cole Campbell heldur um muninn í leik með FH gegn Breiðabliki sumarið 2022. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Hinn átján ára gamli knattspyrmaður William Cole Campbell hóf feril sinn með U19 ára landsliði Bandaríkjanna með látum. 

Skoraði hann tvö mörk í sigri á Englandi, 3:2, í Marokkó um helgina. 

Cole, sem spilar með unglingaliði Dortmund, skoraði tvö mörk í sjö leikjum fyrir íslenska U17 ára landsliðið og er búinn að jafna þann árangur strax í fyrsta leik.

Á Íslandi lék Cole með Breiðabliki og FH áður en hann fór út til Dortmund. Faðir hans er bandarískur en móðir hans Rakel Ögmundsdóttir er fyrrverandi landsliðskona Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert