Einfalt svar Messi við flókinni spurningu

Lionel Messi er engum líkur.
Lionel Messi er engum líkur. AFP/Juan Mabromata

Argentínumaðurinn Lionel Messi, leikmaður Inter Miami, er einn albesti knattspyrnumaður sögunnar.

Hann var til viðtals hjá the Big Time-hlaðvarpinu þar sem hann var spurður hvort hann ætti einhvern draum eftir. 

„Tengt fótbolta? Nei, mér tókst allt á ferlinum,“ sagði Messi einfaldlega. 

Messi, sem verður 37 ára gamall á árinu, lýgur ekki en Argentínumaðurinn hefur unnið allt sem hægt er að vinna. Stærsti sigurinn á ferlinum kom þó er hann var 35 ára gamall, er hann varð heimsmeistari með Argentínu í Katar 2022. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert