Andri Lucas með enn eitt markið

Andri Lucas Guðjohnsen skoraði mark Lyngby.
Andri Lucas Guðjohnsen skoraði mark Lyngby. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Landsliðsmaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen skoraði sitt ellefta mark á leiktíðinni í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta á leiktíðinni er hann gerði mark liðsins gegn Viborg á útivelli í dag.

Því miður fyrir Andra og félaga máttu þeir þola tap, 1:2. Andri kom Lyngby yfir á 3. mínútu og lék allan leikinn. Kolbeinn Birgir Finnsson gerði það sömuleiðis. Sævar Atli Magnússon lék fyrstu 69 mínúturnar.

Lyngby er í tíunda sæti deildarinnar með 25 stig eftir 26 leiki og aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert