Tveir sigrar hjá Ragnheiði

Ragnheiður Ragnarsdóttir, sundkona úr KR sigraði í kvöld í úrslitum í 100 m fjórsundi á Danish Intenational Swim Cup í Esbjerg. Hún synti á 1.04,66 sem er 0,8 sekúndum frá Íslandsmeti hennar í greininni. Hún vann jafnframt 50 m baksund i morgun. Þá varð Jón Oddur Sigurðsson í 4 sæti í sömu grein á 59,06 sekúndum, en hann vann einnig í 50 m bringusundi i morgun 16/100 úr sekúndu fra Íslandsmetinu. Hrafn Traustason frá Akranesi sigraði í flokki 15 ára í 100 m fjórsundi á 1.03,30.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert