Stór skáksigur

Björn Þorfinnsson lagði Yue Wang örugglega.
Björn Þorfinnsson lagði Yue Wang örugglega. mbl.is/Ómar

Skákmeistarinn Björn Þorfinnsson (2344 stig) gerði sér lítið fyrir og sigraði stigahæsta keppenda Reykjavíkurskákmótsins Yue Wang (2698 stig) mjög örugglega í fyrstu umferð 23. Reykjavíkurskákmótsins sem haldið er í Faxafeni.  Wang mun vera einn sterkasta skákmaður í heimi sem Íslendingur hefur lagt. 

Á vefnum skak.is kemur fram að meðal annarra úrslita megi nefna að Snorri G. Bergsson (2333 skákstig) gerði jafntefli við þýska stórmeistarann George Meier (2570 skákstig).


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert