Íslendingar sigursælir í Taekwondo

Rut Sigurðardóttir stóð sig frábærlega í dag.
Rut Sigurðardóttir stóð sig frábærlega í dag. Morgunblaðið/ Kristján

Ísland vann til fernra gullverðlauna á Norðurlandamótinu í Taekwondo, sem fram fór í Framheimilinu í dag.

Alls vann Ísland til 16 verðlauna á mótinu sem er besti árangur Íslands hingað til í íþróttinni.

Um 200 þátttakendur tóku þátt í mótinu, en þeir Símon Bjarni Cox og Björn Þorleifsson urðu Norðurlandsmeistarar í karlaflokki og þær Auður Anna Jónsdóttir og Rut Sigurðardóttir sömuleiðis í kvennaflokki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert