Williams og Safina í úrslit

Serena Williams
Serena Williams AP

Það verða bandaríska tenniskonan Serena Williams og Dinara Safina frá Rússlandi sem leika til úrslita í einliðaleik kvenna á opna ástralska meistaramótinu.

Williams hefur þrísvar sigrað á mótinu, 2003, 2005 og 2007, en Safina, sem er 22 ára, er í fyrsta sinn í úrslitum á mótinu.

Williams lagði í nótt Elenu Dementievu frá Rússlandi, en hún sigraði á Ólympíuleikunum í sumar, á meðan Safnia lagði löndu sína Veru Zvonerevu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert