Badminton: Tinna leikur til úrslita í þremur flokkum

Badmintonkonan Tinna Helgadóttir.
Badmintonkonan Tinna Helgadóttir. mbl.is/Golli

Í dag verður leikið til úrslita á Meistaramóti Íslands í badminton. Keppni í meistaraflokki hefst kl. 13.50 en mótið fer fram í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.Tinna Helgadóttir leikur til úrslita í þremur greinum á morgun. Hún á því möguleika á að bætast í hóp sextán annarra leikmanna sem unnið hafa þrefallt á Meistaramóti Íslands í badminton

Í einliðaleik karla leika til úrslita Íslandsmeistari síðasta árs, Helgi Jóhannesson, TBR, og Hugi Heimirsson, TBR. Hugi flutti með fjölskyldu sinni til Svíþjóðar 6 ára og hefur því búið í Svíþjóð stærstan hluta ævinnar. Hann keppti fyrir Svíþjóð í alþjóðlegum mótum á árunum 2003-2006 og var um tíma í kringum 70. sætið á heimslista Alþjóða Badmintonsambandsins. Hann sigraði Magnús Inga Helgason í undanúrslitunum í gær. Helgi vann bróður sinn Atla Jóhannesson í hinum undanúrslitaleiknum.

Þær Karitas Ósk Ólafsdóttir, ÍA, og Tinna Helgadóttir, TBR, mætast í úrslitunum í einliðaleik kvenna. Þetta er fyrsti úrslitaleikur Karitasar en í þriðja sinn sem Tinna spilar til úrslita í meistaraflokki.

Helgi Jóhannesson og Magnús Ingi Helgason, TBR, mæta þeim Brodda Kristjánssyni og Þorsteini Páli Hængssyni, TBR, í úrslitaleiknum í tvíliðaleik karla.

Til úrslita í tvíliðaleik kvenna leika þær Vigdís Ásgeirsdóttir og Elsa Nielsen, TBR, annarsvegar og Erla Hafsteinsdóttir, BH, og Tinna Helgadóttir, TBR hinsvegar. Vigdís hefur sex sinnum orðið Íslandsmeistari í tvíliðaleik og Elsa sjö sinnum en saman hafa þær sigrað fjórum sinnum. Tinna og Erla hafa aldrei orðið Íslandsmeistarar í tvíliðaleik.

Íslandsmeistarar síðasta árs í tvenndarleik systkinin Tinna og Magnús Ingi Helgabörn mæta í úrslitum þeim gamalreyndu Brodda Kristjánssyni og Elsu Nielsen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert