Einar stýrir Fram í kvöld

Halldór Jóhann Sigfússon og félagar hans í Fram mæta FH-ingum …
Halldór Jóhann Sigfússon og félagar hans í Fram mæta FH-ingum í Kapalrika í kvöld. mbl.is/Ómar Óskarsson

Framarar hafa ekki enn ráðið eftirmann Viggós Sigurðssonar sem leystur var frá störfum sem þjálfari karlaliðs félagsins í handknattleik í síðustu viku.

,,Við erum í viðræðum við einn aðila en málin eru ekki komin á hreint ennþá. Þar til mun Einar Jónsson stýra liðinu,“ sagði Hlynur Elfar Þrastarson, varaformaður handknattleiksdeildar Fram, við Morgunblaðið í gær.

Framarar sitja á botni N1-deildarinnar með aðeins 2 stig eftir sex leiki en Safamýrarliðið sækir FH-inga heim í Kaplakrika í kvöld og mun Einar Jónsson stjórna liðinu eins og í bikarleiknum á móti ÍBV um síðustu helgi.

Haraldur Þorvarðarson, línumaðurinn sterki, er ekki búinn að jafna sig af meiðslum í kálfa og verður því fjarri góðu gamni í Krikanum í kvöld.

Leikurinn í Kaplakrika í kvöld hefst klukkan 19.30 á sama tíma mætast Grótta og Stjarnan á Seltjarnarnesi.

Að sögn Hlyns hyggjast Framarar reyna að styrkja lið sitt þegar opnað verður fyrir félagaskipti eftir áramótin en sú staða sem þeir leita helst til er skyttustaðan hægra megin. gummih@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka