Gunnar vann gull

Gunnar Nelson. stækka

Gunnar Nelson. mbl.is

Íslenski bardagaíþróttamaðurinn Gunnar Nelson vann til gullverðlauna í sínum þyngdarflokki á Grapplers Quest, sterku móti í uppgjafarglímu sem fram fór í New Jersey í kvöld.

Gunnar glímdi við fjóra andstæðinga í þyngdarflokknum og vann tvær glímur á stigum og tvær með því að neyða andstæðinginn til uppgjafar, m.a. úrslitaglímuna sem hann sigraði á svokölluðu guillotine hengingartaki.

Gunnar féll hins vegar úr leik í opnum flokki á minnsta mögulega mun, einu advantage stigi, gegn sér rúmlega 50 kg þyngri andstæðingi.

Gunnar dvelst nú við æfingar í New York.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí


finnur.is