Guðmundur og Áslaug settu upp hringana

Guðmundur og Áslaug í sjöunda himni.
Guðmundur og Áslaug í sjöunda himni. mbl.is/Jón Björn

Opnunarhátíð Alþjóðaleika Special Olympics fór fram í Aþenu í gærkvöldi með pompi og prakt en mesta lukku í íslenska hópnum vakti þó uppátæki þeirra Guðmundar Arnar Björnssonar og Áslaugar Þorsteinsdóttur en þau eru keppendur á vegum Íslands á leikunum.

Guðmundur og Áslaug trúlofuðu sig í gær á meðan þúsundir íþróttamanna streymdu inn á Kallimarmaro Panathinaiko Stadium. Óhætt er að fullyrða að þessi trúlofun sé með eitthvert mesta áhorf sem um getur í Íslandssögunni og parið átti með íslenska hópnum eftirminnilega kvöldstund.

Bæði koma þau Guðmundur og Áslaug frá Þjóti á Akranesi, Guðmundur keppir í boccia og Áslaug í keilu. Venju samkvæmt marsera íþróttamenn leikanna inn á leikvanginn við opnunarhátíðina og þegar Ísland, sem var nr. 52 í röðinni, hafði lokið sinni marseringu stigu þau Áslaug og Guðmundur fram og skiptust á hringum við mikið lófatak viðstaddra. 

Af opnunarhátíðinni er það að segja að um tæplega fjögurra tíma veislu var að ræða þar sem enginn annar en Stevie Wonder tók lagið við miklar og góðar undirtektir viðstaddra og leikkonan Vanessa Williams hóf upp raust sína og splæsti í dúett með hr. Wonder í laginu ,,That´s what friends ar for.“ Wonder er jafn harður af sér og hinn aldni marmari þessa elsta íþróttaleikvangs í heiminum þar sem hátíðin fór fram. Wonder hefur engu gleymt og ekki fallið skuggi á nokkurn einasta tón hjá tónlistarmanninum síðustu áratugi.

Þá var sundgarpurinn Andri Hilmarsson úr Ösp í Reykjavík valinn til þess að vera merkisberi Íslands og hélt hann á merki hópsins á meðan marserað var inn á leikvanginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert