Spretthlauparinn Usain Bolt sigraði með yfirburðum í 200 metra hlaupi á Demantamóti í Stokkhólmi í kvöld.
Bolt sem er heimsmethafi í greininni hljóp vegalengdina á 20,03 sekúndum og var tæplega hálfri sekúndu á undan næsta manni.
Bolt átti ekki sérlega góðar minningar frá Stokkhólmi því þar tapaði hann í fyrra fyrir Tyson Gay í 100 metra hlaupi.