Björk Óðinsdóttir úr Kraftlyftingafélagi Akureyrar varð í dag Íslandsmeistari í opnum flokki kvenna í Ólympískum lyftingum, en Íslandsmótið í lyftingum stendur nú yfir í húsakynnum Crossfit Reykjavík í Faxafeni.
Björk keppti í -63kg þyngdarflokki og tók forystu eftir fyrri hlutann þegar hún snaraði 75kg í þriðju og síðustu tilraun.
Keppnin milli Bjarkar, Önnu Huldu Ólafsdóttur og Þuríðar Erlu Helgadóttur var hörð í -63kg flokknum og Anna Hulda gaf tóninn þegar hún bætti eigið Íslandsmet í jafnhendingu frá því á Evrópumótinu í Ísrael fyrir tæpum hálfum mánuði. Anna Hulda jafhenti í dag 95kg.
Íslandsmet Önnu Huldu stóð þó aðeins í tvær mínútur því Björk tók sig til að jafnhenti 96kg í sinni annarri lyftu og setti um leið Íslandsmet í jafnhendingu í -63kg þyngdarflokki kvenna. Björk reyndi svo við 100kg í þriðju og síðustu lyftunni og náði þeim upp fyrir haus. Hins vegar dæmdu dómararnir lyftuna ógilda.
Björk lyfti samanlagt 171kg í snörun og jafnhendingu og varð Íslandsmeistari bæði í -63kg flokknum og í opnum flokki kvenna. Í opnum flokki kvenna er árangur keppenda reiknaður út eftir svokölluðu Sinclair kerfi þar sem keppendur eiga jafna möguleika í að vinna óháð þyngd. Þar hafði Björk sigur og er því Íslandsmeistari í opnum flokki kvenna í Ólympískum lyftingum 2014.
Keppni í karlaflokki stendur enn yfir.