Novak Djokovic og Serena Williams sem sitja í efstu sætum heimslistans í tennis, eru komin áfram í þriðju umferð Opna bandaríska meistaramótsins í tennis.
Bæði komust auðveldlega áfram. Djokovic hafði betur gegn Paul-Henri Mathieu, 6:1, 6:3 og 6:0, á meðan Williams fór illa með löndu sína Vaniu King, 6:1 og 6:0, í leik sem stóð yfir í minna en klukkutíma.
Serena á titil að verja á mótinu en Djokovic vann mótið síðast árið 2011.