Norðfirðingarnir í Þrótti unnu öruggan sigur á Aftureldingu, 3:0, þegar liðin mættust í efstu deild karla í blaki að Varmá í Mosfellsbæ í gærkvöld.
Fyrsta hrinan var nokkuð jöfn en Þróttarar voru þó alltaf skrefin á undan og sigruðu 25:21. Afturelding sá aldrei til sólar í annari hrinu sem endaði 25:18 fyrir Þrótti. Áfram voru Austfirðingar með undirtökin í þeirri þriðju og sigruðu 25:22.
Stigahæstir í liði Þróttar voru Valgeir Valgeirsson með 14 stig og Mattías Haraldsson með 9 stig. Í liði Aftureldingar var Viktor Emile C Gauvrit með 8 stig og Ismar Hadziredzepovic með 7 stig.