Krister Blær Jónsson úr ÍR reyndi þrívegis við 5,31 í stangarstökkinu, sem hefði orðið nýtt íslandsmet. Ekki komst hann yfir að þessu sinni en það er ekki langt í það hjá pilti.
Hann vippaði sér yfir 5,21 og bætti þar með Íslandsmet í piltaflokki og var alls ekki langt frá því að bæta met Sigurar T. Sigurðssonar frá því árið 1984, en það er 5,30.