Ásgeir Sigurgeirsson lenti í 5. sæti í frjálsri skammbyssu á heimsbikarmótinu í skotfimi sem fór fram í Changwon í Suður-Kóreu í nótt. Ásgeir náði 127,5 stigum meðan sigurvegarinn, Zhang Bowen frá Kína, náði 192,4.
Ásgeir keppti í undankeppninni í gær og flaug áfram í aðalkeppnina með fínu skori, 560 stig. Í aðalkeppninni tryggði hann sér í úrslitakeppnina með því að skjóta 565 stig og jafnaði þar með Íslandsmet sitt.
Ásgeir keppir sömuleiðis með loftskammbyssu og fer sú keppni fram á sunnudag.