Um helgina fór fram Meistaramót Íslands í fjölþrautum í Kaplakrika í Hafnarfirði. Tristan Freyr Jónsson ÍR sigraði í 18-19 ára flokki og náði jafnframt lágmarki á EM 19 ára og yngri í júlí í sumar.
Raguel Pino Alexanderson UFA setti nýtt met í bæði 14 og 15 ára flokkum í fimmtarþraut.
Tristan Freyr hlaut alls 6.962 stig og sigraði í flokki 18-19 ára. Þessi árangur Tristans er ekki langt frá meti Einars Daða Lárussonar í þessum aldursflokki eða 7.394 stig. Í öðru sæti varð Ari Sigþór Eiríksson Breiðabliki með 5.113 stig og þriðji varð Jón Gunnar Björnsson ÍR með 5.099 stig.
Í sjöþraut kvenna sigraði Sandra Eiríksdóttir ÍR með 3.556 stig og í flokki 16-17 ára stúlkna bar Sara Hlín Jóhannsdóttir Breiðabliki sigur úr býtum með 3.624 stig. Í karlaflokki sigraði Árni Björn Höskuldsson FH með 5.468 stig.
Í tugþraut í flokki 16-17 ára sigraði Guðmundur Bjarki Daníelsson HSK með 6.094 sig. Annar varð Guðmundur Karl Úlfarsson Ármanni með 5.748 stig og þriðji varð Gunnar Eyjólfsson UFA með 5.197 stig.