Serbinn Novak Djokovic sem hefur titil að verja á Wimbledon-mótinu í tennis hefur ekki enn tapað setti á mótinu í ár. Djokovic komst í fjórðu umferð mótsins með sigri á Ástralanum Bernard Tomic. Ríkjandi meistari í kvennaflokki, Serena Williams, er þessa stundina að etja kappi við Heather Watson.
Önnur úrslit á Wimbledon mótinu síðdegis í dag voru þau að Belinda Bencic vann Bethanie Mattek-Sands, Maria Sharapova vann Irinu-Cameliu Begu, Kristina Mladenovic og Victoriu Azarensku og Sloane Stephens vann Lucie Safarovu í þriðju umferð mótsins í kvennaflokki.
Leonardo Mayer vann svo Kevin Anderson í þriðju umferð mótsins í karlaflokki.