Evrópu- og Spánarmeistarar Barcelona hafa hækkað tilboð sitt í Tékkann Filip Jicha fyrirliða og stórskyttu í liði þýsku meistarana í Kiel.
Barcelona er sagt hafa boðið 1 milljón evra í Jicha en sú upphæð jafngildir 148 milljónum króna. Áður hafði Kiel hafnað tilboði frá Börsungum sem hljóðaði upp á 750 þúsund evrur.
Sjálfur vill Jicha ganga í raðir Barcelona og rétta af fjárhag sinn en samkvæmt fjölmiðlum í Þýskalandi á Jicha að hafa eytt um 40% allra launa sem hann hefur fengið á átta ára tímabili hjá Kiel í misjafnar fjárfestingar. Hnn vill nú yfirgefa Kiel til þess að geta veitt fjölskyldu sinni fjárhagslegt öryggi þegar ferlinum líkur.