Þórdís Eva í úrslit í Georgíu

Þórdís Eva Steinsdóttir á fullri ferð.
Þórdís Eva Steinsdóttir á fullri ferð. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Íslenski hópurinn á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Tbilisi í Georgíu átti sinn besta keppnisdag í gær þar sem Þórdís Eva Steinsdóttir tryggði sér sæti í úrslitum í 400m hlaupi sem fram fer á morgun.

Þórdís Eva lét vind og 37°C hita ekki slá sig út af laginu og tryggði sér sjálfkrafa sæti í úrslitum með því að koma önnur mark í fyrsta riðli á tímanum 56,31 sekúndum. Þrír riðlar voru í hlaupinu og tveir fyrstu í hverjum riðli tryggja sér sjálfkrafa þátttökurétt í úrslitum.

Þórdís Eva er önnur tveggja í úrslitum sem er á yngra ári í keppni stúlkna 15 og 16 ára og mun hún hlaupa á 8. braut á morgun. Besti árangur Þórdísar Evu er 54,80 sekúndur og er hún í 11. sæti afrekslistans í 400 metra hlaupi yfir bestu tíma í Evrópu í flokki stúlkna 15 og 16 ára. Aðeins ein stúlka á yngra ári eins og Þórdís er ofar en hún á listanum í ár.

Bjarki Freyr Finnbogason hljóp 200m í riðlakeppninni í sterkum mótvindi (-3,7m/sek) og lauk keppni á tímanum 23,88 sekúndum. Hilda Steinunn Egilsdóttir keppti í stangarstökki, fór yfir 3,10 metra í annari tilraun og lauk keppni eftir þrjár góðar tilraunir við 3,25 metra. Góð reynsla komin í reynslubankann hjá Bjarka Frey og Hildi Steinunni.

Hildigunnur Þórarinsdóttir lauk keppni á þriðjudag. Hún tók þátt í 100 metra grindahlaupi og hljóp á tímanum 15,19 sekúndum og endaði í 8. sæti í 3. riðli. Síðar um daginn keppti hún í forkeppni í  langstökki og lauk keppni í þeirri grein með stökki upp á 4,91 metra.

Daði Arnarson hljóp 800 metra og hljóp mjög vel, endaði í 5. sæti í 1. riðli af þremur, á tímanum 2:00,69 mínútum sem er 2/100 frá hans besta árangri. Töluvert var um stimpingar í hlaupinu og mjög heitt. Styrmir Dan Hansen Steinunnarson frá Þór í Þorlákshöfn  stökk 1,84 metra í hástökki í forkeppni mótsins á mánudaginn og hefur lokið keppni í þeirri grein. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert