„Hann reyndi að drepa mig“ - myndskeið

Usain Bolt átti sér einskis ills von þegar myndatökumaðurinn keyrði …
Usain Bolt átti sér einskis ills von þegar myndatökumaðurinn keyrði á hann. Ljósmynd / Guardian

Eins og greint var frá hér á mbl.is áðan er Jamaíkumaðurinn Usain Bolt heimsmeistari í 200 metra hlaupi. Bolt var að fagna sigrinum og baða sig í sviðsljósinu, þegar einn myndatökumannanna sem átti að fanga myndir af Bolt varð sjálfur efni í sprenghlægilegt myndskeið.

Seinheppinn myndatökumaður gerði sér þá lítið fyrir og sópaði löppunum undan einum af verðmætasta líkama heimsins, það er heimsmeistaranum sjálfum. 

Bolt var hins vegar léttur þegar hann áttaði sig á að honum varð ekki meint af árekstrinum og hafði eftirfarandi um málið að segja.

„Hann reyndi að drepa mig. Ég veit ekki almennilega hvað var í gangi,“ sagði Usain Bolt við fjölmiðla í léttum tón eftir áreksturinn.

Myndskeið af árekstrinum sprenghlægilega má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert