Kínverjar tryggðu sér í morgun fyrstu gullverðlaunin á heimsmeistaramótinu í frjálsum í íþróttum í Peking.
Lio Hong kom fyrst í mark í 20 kílómetra göngu kvenna á tímanum 1:27,45 klukkustundum og var hún sjónarmun á eftir litlu systur sinni Lu Xiuzhi. Bronsverðlaunin féllu Lyudmylu Olyanovsku frá Úkraínu í skaut en hún var 28 sekúndum á eftir systrunum sem fengu sama tíma.