Eaton vann á nýju heimsmeti

Ashton Eaton setti nýtt heimsmet í tugþraut.
Ashton Eaton setti nýtt heimsmet í tugþraut. AFP

Bandaríkjamaðurinn Ashton Eaton var nú rétt í þessu að setja nýtt heimsmet í tugþraut á HM í frjálsum íþróttum sem fram fer í Peking.

Síðasta grein tugþrautarinnar var 1.500 metra hlaup og þurfti Eaton að hlaupa á undir 4:18 mínútum til þess að slá metið. Hann kom annar í mark í sínum riðli á tímanum 4:17,52 mínútum eftir magnaðan endasprett og fékk fyrir það 829 stig, en þurfti 823 til þess að setja heimsmetið.

Samanlagt fékk Eaton 9.045 stig, og sló hann gamla heimsmetið um sex stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert