Rússneska tenniskonan Maria Sharapova hefur dregið sig út úr opna bandaríska meistaramótinu, síðasta risamóti ársins, vegna meiðsla.
Sharapova er í 3. sæti heimslistans en hefur þó ekki getað keppt síðan á Wimbledon-mótinu í sumar vegna hnémeiðsla. Engu að síður beið hún með þessa ákvörðun sína fram á síðustu stundu en mótið hefst í dag í New York.
Sharapova er 28 ára gömul og fimmfaldur sigurvegar á risamótunum.