Hundrað dagar í Ólympíuleikanna

Merki Ólympíuleika.
Merki Ólympíuleika. AFP

Í dag, miðvikudaginn 27. apríl, eru 100 dagar í að Ólympíuleikarnir 2016 í Ríó verði settir.

Tendrun Ólympíueldsins í Grikklandi í síðustu viku vakti athygli á því að næstu sumarleikar eru hinum megin við hornið.

Í Brasilíu er lokaundirbúningur hafinn. Keppnismannvirki eru 98% tilbúin og flest þeirra hafa nú þegar hýst keppnisviðburði til að prófa aðstöðu og þjálfa starfsmenn og sjálfboðaliða. Útlit leikanna er sífellt að taka á sig endanlega mynd og borgin, Rio de Janeiro, er að verða tilbúin til að taka á móti helstu íþróttastjörnum heimsins í ágúst.

Nú þegar hafa sex íslenskir keppendur náð lágmörkum eða unnið sér inn keppnisrétt á leikanna.  Vonir standa til þess að enn fleiri bætist í þann hóp á næstu vikum, en þó er ljóst að íslenski hópurinn verður fámennari en á flestum síðustu sumarleikum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert