Kári Mímisson og Sigrún Ebba Urbancic Tómasdóttir, bæði úr KR, sigruðu í meistaraflokki á stigamóti KR í borðtennis, sem fram fór í Íþróttahúsi Hagaskóla á sunnudaginn.
Birgir Ívarsson, BH og Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingur sigruðu í 1. flokki og Karl A. Claesson, KR og Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir, KR lönduðu sigri í 2. flokki. Þetta var fyrsta stigamót keppnistímabilsins og komu keppendur frá BH, HK, KR og Víkingi.
Úrslit í einstökum flokkum:
Meistaraflokkur karla
3.-4. Magnús Jóhann Hjartarson, Víkingur
3.-4. Magnús Gauti Úlfarsson, BH
Kári vann Sindra 3-0 (11-8, 11-6, 11-9) í úrslitaleiknum.
Meistaraflokkur kvenna
Sigrún tapaði ekki lotu og vann Stellu 3-0 (11-3, 11-2, 11-7) í þeirra innbyrðis leik.
1. flokkur karla
3.-4. Óskar Agnarsson, HK
3.-4. Karl Andersson Claesson, KR
Birgir, sem var stigahæsti keppandinn tapaði fyrir Óskari í riðlinum. Hann vann síðan alla sína keppinauta og lagði Ísak 3-1 (11-7, 11-6, 8-11, 11-7) í úrslitunum.
1. flokkur kvenna
Leikmenn í 1. flokki og 2. flokki léku saman á mótinu, til að allar fengju fleiri leiki. Stella vann alla andstæðinga sína 3-0 og sigraði Guðrúnu 11-7, 11-5, 16-14 í þeirra innbyrðis leik.
2. flokkur karla
3.-4. Jóhannes Kári Yngvason, KR
3.-4. Elvar Kjartansson, KR
Karl, sem var stigahæsti leikmaðurinn í flokknum, lagði Piotr 3-1 (12-10, 6-11, 11-4, 11-9) í úrslitum. Piotr er Pólverji, sem keppti á sínu fyrsta móti á Íslandi á þessu móti.
2. flokkur kvenna
Leikmenn í 1. flokki og 2. flokki léku saman á mótinu, eins og áður kom fram. Kristín vann Þuríði 3-0 (11-7, 11-4, 11-8) í úrslitaleiknum í 2. flokki.