Ástralinn Nick Kyrgios sýndi af sér ótrúlega óvirðingu í garð keppinautar síns í keppni á Sjanghæ-meistaramótinu í tennis í gær. Kyrgios tapaði þá fyrir Mischa Zverev og hefur fengið sekt fyrir framkomu sína.
Kyrgios sýndi engan áhuga á að taka þátt í leiknum og uppgjafir hans voru oftar en ekki lausar sendingar yfir netið. Eftir að hafa gefið upp rölti hann svo í rólegheitum á bekkinn á meðan Zverev skoraði stig.
Kyrgios var jafnframt aðvaraður í leiknum fyrir blótsyrði auk þess sem hann lenti saman við áhorfanda. Glefsur af tilburðum þess ástralska má sjá hér að neðan.
QUE DESAGRADABLE. Nick Kyrgios decidió hacer el ridículo para ser eliminado del ATP de Shangai:pic.twitter.com/Tx31fnCwfo
— ⚔ Mario Riveretti ⚔ (@Mario_Riveretti) October 13, 2016