Í gær fóru fram fyrstu mót vetrarins í alpagreinum þegar keppt var í tveimur svigmótum á Dalvík. Bæði mótin voru alþjóðleg FIS ENL-mót og gefa því punkta inn á heimslista FIS.
Björgvin Björgvinsson kom með skemmtilega endurkomu í brekkurnar og tók þátt á sínu fyrsta alþjóðlega móti síðan 2013. Hann hefur greinilega engu gleymt og fór með sigur af hólmi í báðum mótunum í karlaflokki.
Katla Björg Dagbjartsdóttir vann einnig tvöfalt í dag eftir spennandi keppni. Í báðum mótum var Katla önnur eftir fyrri ferðina en átti flottar seinni ferðir.
Úrslit gærdagsins
Karlar - Fyrra mót
Konur - Fyrra mót
Karlar - Seinna mót
Konur - Seinna mót