Kristján og Þorri í 8-manna úrslit

Kristján Helgason og Þorri Jensson.
Kristján Helgason og Þorri Jensson.

Kristján Helgason og Þorri Jensson tryggðu sér nú síðdegis sæti í átta manna úrslitum á Norðurlandamótinu í snóker sem fram fer í Faxafeni.

Kristján Helgason vann sinn riðil með miklum yfirburðum og vann alla sína leiki. Hann hélt sigurgöngu sinni áfram á Norðurlandamótinu í dag þegar hann sigraði Gunnar Hreiðarsson í Íslendingaslag í 16-manna úrslitum, 4:0.

Þorri Jensson lék sama leik og Kristján og lagði gríðarlega sterkan Finna að velli, Risto Vayrynen, 4:0 í 16-manna úrslitunum. Vayrynen hafði unnið alla sína leiki í riðlakeppninni.

Kristján mætir Norðmanninum Christopher Watts í 8-manna úrslitum en Þorri fær annað hvort Rune Kampe eða Lasse Pettersen í næstu umferð, en báðir eru frá Danmörku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert