Freydís Halla úr leik í svigkeppninni

Freydís Halla Einarsdóttir er fallin úr leik í keppni í …
Freydís Halla Einarsdóttir er fallin úr leik í keppni í svigi í alpagreinum á HM í Sviss. Ljósmynd/Einar Þór Bjarnason

Freydís Halla Einarsdóttir krækti í hlið í fyrri ferð sinni í aðalkeppninni í svigi á HM i alpagreinum sem fram fór í Sviss í morgun. Freydís Halla hafði skíðað í rúmlega 20 sekúndur þegar hún krækti í hliðið.

Freydís Halla, sem komst naumlega upp úr forkeppninni í gær, er því fallin úr leik og kemst ekki áfram í seinni umferð aðalkeppninnar. Bandaríkjakonan Mikaela Shiffrin er í efsta sæti eftir fyrri ferðina, en hún hefur tvívegis orðið heimsmeistari í svigi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert