Sturla Snær Snorrason er kominn í aðalkeppnina í svigi á heimsmeistaramótinu í alpagreinum sem fram fer í Sviss. Sturla hafnaði í 12. sæti undankeppninnar en 25 efstu keppendurnir komust í aðalkeppnina.
Jón Gunnar Guðmundsson, Kristinn Logi Auðunsson og Magnús Finnsson eru hins vegar allir úr leik. Jón Gunnar hafnaði í 40. sæti á meðan Kristinn og Magnús kláruðu ekki sína ferð.
Aðalkeppnin í svigi fer fram á morgun.