Júdókappinn Sveinbjörn Iura vann til bronsverðlauna á sterku alþjóðlegu júdómóti sem fram fór í Vejle í Danmörku um nýliðna helgi.
Mótið var mjög sterkt en margir keppendur frá Norðurlöndunum og Evrópu tóku þátt í því sem og keppendur úr einum sterkasta háskóla Japans, Tokai-háskólanum
„Þessi árangur er mjög mikilvægur fyrir mig þar sem þetta er góður undirbúningur fyrir komandi mót eins og Norðurlandamótið og Smáþjóðaleika sem verða haldnir í San Marínó í sumar,“ sagði Sveinbjörn í samtali við mbl.is.