Svissneski tenniskappinn, Roger Federer, er svo sannarlega ekki á þeim buxunum að hætta keppni eins og þrálátur orðrómur hefur verið uppi um síðustu mánuði. Federer er 36 ára gamall og var mikið frá keppni á síðasta ári vegna þrálátra meiðsla.
Hann hefur loks jafnað sig ef marka má sigur hans á Opna ástralska meistaramótinu fyrir skemmstu.
Federer skrifaði í gær undir samning um að keppa á Opna svissneska mótinu til ársins 2019 og hyggst ekki leggja spaðann á hilluna í bráð.