Hilmar Örn Jónsson varð í öðru sæti í sleggjukasti á móti í Charlottesville í Bandaríkjunum í gærkvöldi, en hann keppir fyrir Virginíu-háskólann þar í landi.
Hilmar Örn kastaði sleggjunni 70,31 metra og var einum og hálfum metra á eftir sigurkastinu sem var 71,88 metrar.
Aldursflokkamet Hilmars í flokki 20-22 ára er 72,12 metrar frá því í Búdapest síðasta sumar.