Íslandsmótið í skvassi hófst í gær í húsakynnum Skvassfélags Reykjavíkur að Stórhöfða 17 og því lýkur í dag með úrslitaleikjum.
Keppt er í tveimur flokkum, meistaraflokki og A-flokki en fresta þurfti keppni í unglingaflokki. Úrslitaleikirnir hefjast klukkan 13.30 þegar keppt verður um þriðja sætið í meistaraflokki. Úrslitaleikur í A-flokki hefst klukkan 14 og úrslitaleikurinn í meistaraflokki klukkan 14.30.
Hér má sjá stöðu mála í flokkunum tveimur: