Gefur verðlaunafé til fórnarlamba brunans

Andy Murray.
Andy Murray. AFP

Skotinn Andy Murray, efsti maður heimslistans í tennis, er sagður ætla að gefa allt verðlaunafé sem hann gæti mögulega unnið á Queens Club-mótinu til fjölskyldna fórnarlamba stórbrunans í Lundúnum á dögunum.

Nýjustu fréttir herma að 79 hafi látist eða er saknað eftir eldsvoðann í Grenfell-háhýsinu í borginni í síðustu viku, en talið er að rekja megi eldsvoðann til áralangrar vanrækslu stjórnvalda.

Murray er talinn geta unnið sér inn allt að 350 þúsund pund með sigri á mótinu, eða rúmar 45 milljónir íslenskra króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert