Ísland mætir Kýpur í hreinum úrslitaleik í Evrópumóti smáþjóða í blaki kvenna sem fer fram í Lúxemborg um helgina. Ísland vann Færeyjar og heimastúlkur í gær.
Báðir leikir gærdagsins fóru 3:0 en í frétt blakfrétta er greint frá því að frammistaðan gegn Lúxemborg hafi verið ein sú besta sem liðið hafi sýnt síðustu ár; nánast allt hafi gengið upp í leiknum.
Stigahæst í íslenska liðinu gegn Lúxemborg var Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir með 19 stig. Næst á eftir henni komu Thelma Dögg Grétarsdóttir og María Rún Karlsdóttir báðar með 12 stig.
Leikur Íslands og Kýpur hefst klukkan 14.00.