Bolt af öryggi inn í úrslitin

Usain Bolt brosir í dag.
Usain Bolt brosir í dag. AFP

Usain Bolt verður á meðal þátttakenda í úrslitum í 100 metra hlaupi karla á HM í London. Hann tryggði sér sæti í úrslitunum með að hlaupa á 9,98 sekúndum í undanúrslitum í kvöld. 

Bolt fer með næstbesta tímann inn í undanúrslitin, en Christian Coleman hljóp á 9,97 sekúndum. Yohan Blake var með þriðja besta tímann, 10,04 sekúndur. 

Ásamt Coleman, Bolt og Blake verða þeir Reece Prescod, Akani Simbine, Justin Gatlin, Jimmy Vicaut og Bingtian Su í úrslitahlaupinu sem hefst kl. 20:45 í kvöld. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert