Íslandsmóti golfklúbba hjá eldri kylfingum og í unglingaflokkum lauk í gær. Í fyrstu deild eldri kylfinga bar Golfklúbburinn Keilir sigur úr býtum í kvennaflokki og Golfklúbbur Mosfellsbæjar í karlaflokki. GM vann einnig í flokki 16-18 ára í drengjaflokki, en GKG vann í flokki 15 ára og yngri.
A-sveit GR vann í flokki 15 ára og yngri hjá stelpunum, en engin sveit var í flokki 16-18 ára í kvennaflokki. Í ár voru eldri og yngri kylfingar Golfklúbbs Mosfellsbæjar og Golfklúbbsins Keilis (unnu einnig 2. deild kk.) sigursælastir, báðir klúbbarnir sigldu tveimur Íslandsmeistaratitlum í höfn um helgina.