Sara og Barbizi höfnuðu í 12. sæti

Sara Rós Jakobsdóttir og Nicolo Barbizi.
Sara Rós Jakobsdóttir og Nicolo Barbizi. Ljósmynd/DSÍ

Sara Rós Jakobsdóttir og Nicolo Barbizi höfnuðu í 12. sæti á heimsmeistaramótinu í tíu dönsum í Marseille í Frakklandi í dag, sem er sjö sætum ofar en parið endaði á síðasta móti.  

Sara og Barbizi, sem er Ítali, búa í Danmörku og æfa þar. Það hefur verið nóg að gera hjá þeim og þau keppt í Kína, Malasíu, Tælandi, Þýskalandi, Japan, Hong Kong, Ungverjalandi, Tékklandi og Spáni síðan þau unnu bikarmeistaratitilinn hér heima í maí síðastliðinn. Þau eru einnig Íslandsmeistarar í 10 dönsum og er Sara Rós margfaldur Íslandsmeistari í dansi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert