Ægir Þór Steinarsson átti fínan leik fyrir TAU Castello sem mátti þola tap gegn B-liði Barcelona í spænsku B-deildinni í körfubolta í dag, 90:80. Ægir skoraði níu stig og tók þrjú fráköst á þeim 15 mínútum sem hann spilaði.
Castello hefur farið illa af stað í deildinni og aðeins unnið einn af fyrstu fjórum leikjum sínum til þessa.