Scottie Scheffler, fremsti kylfingur heims, á yfir höfði sér fjórar ákærur í kjölfar þess að hann var handtekinn fyrir utan Valhalla-völlinn í Kentucky í Bandaríkjunum í dag.
Scheffler virti ekki reglur lögreglumanns um að yfirgefa vettvang er banaslys átti sér stað í morgun.
Þegar Scheffler loks nam staðar kom lögreglumaður aðvífandi og kippti honum út úr bílnum. Var honum síðan ýtt upp að bifreiðinni og handjárnum skellt á hann.
Sheffler hefur verið sleppt út haldi lögreglu og er mættur á Valhalla-völlinn.
Hann átti að hefja leik klukkan 12.48 að íslenskum tíma en mun nú fara af stað klukkan 14.08 að íslenskum tíma.
Nú greinir ESPN frá því að Scheffler eigi fyrir höfði sér fjórar ákærur vegna atviksins.
Þær eru eftirfarandi: