Tinna Jóhannsdóttir úr Golfklúbbnum Keili og Karen Guðnadóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja eru í forystu eftir tvo hringi af þremur í kennaflokki á síðasta stigamótinu á Eimskipsmótaröðinni í golfi. Leikið er á Jaðarsvelli á Akureyri.
Tinna og Karen léku báðar hringina tvo í dag á 150 höggum. Þær eru því á átta höggum yfir pari fyrir lokahringinn á morgun. Særós Eva Kristjánsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er þriðja á 153 höggum, 11 höggum yfir pari.
1.-2. sæti Tinna Jóhannsdóttir GK 75/75 = 150 +8
1.-2. sæti Karen Guðnadóttir GS 75/75 = 150 +8
3. sæti Særós Eva Óskarsdóttir GKG 76/77 = 153 +11