Birgir Leifur Hafþórsson endaði í fimmta sæti á Nordic Ecco mótaröðinni sem fram fór í Svíþjóð.
Birgir Leifur lék lokahringinn á dag á 73 höggum eða einu yfir pari vallarins og samtals lék hann hringina þrjá á 212 höggum eða fjórum höggum undir parinu. Svíinn Jacob Glennemo fagnaði sigri á mótinu en hann lék á 208 höggum samtals.
Ólafur Björn Loftsson tók einnig þátt í mótinu en komst ekki í gegnum niðurskurðinn í gær.